19.01.2008
KA spilaði seinni leik sinn við ÍS í dag og var hann keimlíkur fyrri leiknum. Mikil værð var yfir báðum liðum og var fátt um fína drætti. KA var sterkari aðilinn en náði aldrei að hrista Stúdenta almennilega af sér. Sigur hafðist þó á endanum 3-0 og nú er KA-liðið komið í baráttu við Þróttara um annað sætið í deildinni.
18.01.2008
Fyrsti heimaleikur KA á Íslandsmótinu eftir áramót var spilaður í kvöld. Í heimsókn voru hinir síungu stúdentar úr ÍS. Eftir barning í fyrstu hrinu hafði KA að lokum betur en næstu tvær hrinur voru auðunnar og lyktaði leiknum því með öruggum 3-0 sigri KA. Liðin eigast aftur við á morgun, laugardag og hefst leikurinn kl. 16.00.
18.01.2008
Á afmælishátið KA um síðustu helgi voru nokkrir blakarar sæmdir heiðursmerkjum KA og BLÍ. Hinn óþreytandi Hr. Blak eða bara
Sigurður Arnar Ólafsson eins og við þekkjum hann, fékk gullmerki BLÍ fyrir sinn þátt í grasrótar-og útbreiðslustarfi
íþróttarinnar. Þrír KA-menn fengu silfurmerki BLÍ, þeir Davíð Búi Halldórsson, Gunnar Garðarsson og Haukur Valtýsson.
Heimasíðan óskar þeim kumpánum til hamingju.
09.01.2008
Davíð Búi Halldórsson blakmaður hefur verið valinn íþróttamaður KA árið 2007. Valið var tilkynnt fyrir troðfullu
húsi í á 80 ára afmæli KA sem haldið var í gærkveldi.
Myndir frá athöfninni: http://blak.ka-sport.is/gallery/ithrottamadur_ka_2007_80_ara_afmaeli_la/
11.12.2007
KA og HK léku sinn þriðja leik um helgina á sunnudaginn. Þá léku yngri leikmenn liðanna eða annar flokkur.
08.12.2007
KA vann HK örugglega 3-0 í tveimur viðureignum um helgina.
07.12.2007
Í kvöld og á laugardaginn mætast lið HK og KA í fyrstu deild karla í blaki. Í fyrra mættust þessi lið nokkrum sinnum og hafði HK oftast betur. Liðin mættust t.d. í undanúrslitum Íslandsmótsins og vann HK þar í spennandi viðureignum.Liðin enduðu í 2 og 3 sæti í deildinni síðasta ár og ætti þetta því að verða jafn leikur samkvæmt því. HK liðið hefur þó misst marga menn frá síðasta tímabili og er liðið að mestu skipað ungum leikmönnum.
29.11.2007
KA menn léku við Þrótt helgina 16-17 nóvember en það gekk ekki vel hjá KA mönnum þar sem þeir töpuðu báðum leikjunum 3-0 og 3-0.