30.10.2011
Það verða tveir leikir í blaki í KA Heimilinu í dag. Meistaraflokkur kvenna tekur á móti HK kl 14:00 í dag og svo mun meistaraflokkur karla
mæta HK, sömuleiðis, klukkan 16:00. Við hvetjum alla áhugmenn um blakíþróttina að láta sjá sig.
14.04.2011
Móttaka til heiðurs m.fl. karla í blaki, sem í gærkvöldi urðu Íslandsmeistarar annað árið í röð, var í KA -
Heimilinu í dag. Þar gáfu þau Hrefna G. Torfadóttir formaður og Sigurbjörn Sveinsson nýr varaformaður strákunum blóm frá
félaginu. Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar var einnig viðstaddur og tók til hann til máls og óskaði hann þeim til hamingju
með það mikla afrek að ná að verja alla titlana þrjá, bikar-, deildar- og íslandsmeistaratitilinn.
13.04.2011
Nú rétt í þessu var KA að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki. Liðið spilaði gegn HK í Kópavogi og
náði að kreista fram sigur í æsilegum leik. HK vann fyrstu hrinuna 25-22 en KA vann þrjár næstu, allar með minnsta mun 23-25, 23-25 og . .
. takið vel eftir 29-31.
11.04.2011
KA sigraði HK í þremur hrinum gegn tveimur í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í blaki í KA-heimilinu í
kvöld.
10.04.2011
Úrslitin hefjast á morgun kl. 19:30 þegar meistarar KA taka á móti HK í KA-heimilinu á morgun.
07.04.2011
KA og Þróttur léku annan leik sinn í úrslitakeppni Mikasa-deildarinnar í kvöld. Þróttur hafði yfirburði í fyrstu tveimur
hrinunum og vann þær 13-25 og 11-25. Síðasta hrinan virtist ætla að vera á sömu nótum en í henni hrukku KA-stelpurnar allt í
einu í gang og skoruðu hvert stigið á fætur öðru með Auði Önnu í fararbroddi. KA jafnaði loks 23-23 og komst svo yfir 24-23. Eftir
æsilegan lokakafla þer sem hjólhestaspyrna Birnu Bald var hápunkturinn náðu Þróttarar loks að innbyrða sigur 26-28.
KA-liðið er nú komið í sumarfrí en Þróttur fer í úrslit um íslandsmeistaratitilinn.
07.04.2011
KA tryggði sig í gær í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla og þar með getur liðið unnið þrefalt í ár
því nú þegar eru komnir í hús bæði deildarmeistara- og bikarameistaratitillinn.
06.04.2011
Síðari hluti Íslandsmóts yngriflokka BLÍ var haldið að Varmá í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Nær 450 krakkar tóku
þátt í mótinu. Íslandsmeistarar voru krýndir í 2., 3., 4. og 5. flokki í báðum kynjum. Í 3. flokki drengja varð
KA Íslandsmeistari, í 4. flokki drengja varð KA í öðru sæti í 5. flokki drengja varð KA í 3. sæti og í 3.
flokki stúlkna varð KA í 4. sæti.
04.04.2011
Fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni fór fram í KA-heimilinu í kvöld. KA tók á móti Þrótti sem lenti í
fjórða sæti í deildarkeppninni. Boltastrákar í leiknum voru Haukur Valtýs og Einar Hólmgeirs. Stóðu þeir sig með
miklum sóma.
KA liðið er ekki árennilegt og hefur unnið hvern leikinn af öðrum upp á síðkastið án þess að tapa hrinu. Þróttarar
tóku þó KA 0:3 hér á dúknum fyrr í vetur og þeir voru ekki fjarri því að endurtaka leikinn í kvöld.
04.04.2011
Í kvöld kl. 19.30 taka KA-menn á móti Reykjavíkur-Þrótturum í fyrsta leik í úrslitakeppni Íslandsmótsins í
blaki karla. Leikurinn fer að sjálfsögðu fram í KA-heimilinu. Í hinum leiknum í undanúrslitum mætast HK og Stjarnan syðra.