29.11.2009
KA liðin átti misjöfnu gengi að fagna í Bridgestone bikarnum nú um helgina. Kvennaliðið vann alla sína leiki og komst þar með í
undanúrslit keppninnar. Karlaliðið vann einn leik en tapaði illa fyrir Stjörnunni og HK og þarf því að spila seinna um þau tvö sæti sem
enn eru laus.
28.11.2009
Bæði karla- og kvennalið KA taka þátt í Bridgestone Bikarnum sem fer fram í dag og á morgun í Fylkishölli í Reykjavík.
Fylgjast má með framvindu mótsins á http://www.blak.is/ Einnig sendir Skautafélag Akureyrar lið í kvennaflokki til
þátttöku á mótinu.
23.11.2009
Geta yngri leikmenn sótt sér styrk til þeirra eldri - skiptir sagan og bakgrunnur félaga máli. Af hverju eru gamalgróin
íþróttafélög oftast öflugri en þau ungu? Þetta eru spurningar stundum heyrast í tengslum við
íþróttafélög, á afmælum og hátíðlegum stundum. Um helgina var eitt slíkt afmæli og.....
22.11.2009
KA-menn náðu góðum sigri gegn Þrótti, 3-2 í gær eftir mikinn barning. Einhver værð var yfir liðinu en góður endasprettur
bjargaði tveimur stigum í hús. Mikil forföll voru í röðum KA og greip Marek þjálfari til þess ráðs að kalla til leiks
ýmsa snillinga úr röðum öldungablakara. Má segja að þeir hafi staðið fyrir sínu en yngri spilarar fengu einnig sína eldskírn.
Marek notaði þretttán menn í leiknum og hlýtur það að vera Íslandsmet. Þróttur keyrði hins vegar allan leikinn á
sínum sex mönnum.
20.11.2009
Árið 1989 vann karlalið KA sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í blaki. Af tilefni þess að 20 ár eru liðin
síðan þessi ánægjulegi viðburður átti sér stað hefur stjórn Blakdeildar KA boðið leikmönnum sem unnu þennan
titil að koma á leikinn í MIKASA deildinni milli KA og Þróttar Rvk. karla sem fram fer í KA heimilinu laugardaginn 21. nóvember kl. 17:00.
Fyrir leikinn verður stutt athöfn þar sem þessir leikmenn KA verða heiðraðir og mun Sigurður Harðarsson, sem áður var bæði
stjórnarmaður og þjálfari hjá Blakdeild KA, flytja stutt erindi.
19.11.2009
Hið árlega Opna blakmót KA í verður haldið um helgina. Mótið hefst á föstudagskvöld kl. 18:30 og líkur um kl. 16:00 á
laugardag. Góð þátttaka er á mótinu að vanda alls 22 lið, 14 kvennalið og 8 karlalið. Þess á geta að KA er með 7
lið á mótinu allt frá unglingum upp í öldunga sem er nýtt met hjá félaginu.
18.11.2009
Fyrstu yngriflokkamótin fóru fram um síðustu og þarsíðustu helgi á Neskaupstað. Skemmst er frá því að segja að KA
liðin náðu einhverjum besta árangri sínum á þessum mótum fyrr og síðar. Sérstaklega voru karlaliðin í 3. og 4.
flokki sterk en þau töpuðu ekki hrinu á mótunum.
01.11.2009
Blaklið KA voru í eldlínunni í dag og unnu bæði mjög sterka sigra. Strákarnir fengu Stjörnuna í heimsókn og unnu 3-1 í
mjög jöfnum og spennandi leik. Strax á eftir spiluðu stelpurnar við Þrótt frá Neskaupsstað og eftir frábæran leik urðu
þær ofan á í 3-2 sigri. Liðin eru nú bæði á toppnum og virðist ekkert lát á sigurgöngu kvennaliðsins. Stelpurnar eru
enn ósigraðar og ljóst er að spennandi vetur er að fara í hönd hjá KA.