24.12.2008
Blakdeild KA vill óska landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
15.12.2008
Nú
styttist í jólin og langar okkur í Blakdeild KA að bjóða öllum yngriflokkum og þeim sem hafið verið í
íþróttaskólanum að koma og vera með okkur á hinni hefðfðbundnu jólaæfingu. Hún verður þriðjudaginn 16. desember kl.
18:00-19:30 í KA-heimilinu. Við hvetjum ykkur öll til að mæta og taka foreldra, systkini og vini með ykkur. Þar verður að vanda æsispennandi keppni
þar sem allir verða með – líka mömmur og pabbar!
09.12.2008
Kvennalið KA heimsótti Völsung á fimmtudaginn var í 2. deild kvenna norðurriðli. Skemmst er frá því að segja að KA
liðið átti frábæran leik gegn sterku liði Völsunga og vann leikinn 2-1. (32-30,21-25,10-15).
06.12.2008
KA og Þróttur spiluðu aftur í dag og voru KA menn mun betri en í gærkvöldi. Þrátt fyrir það vann Þróttur á
ný, í þetta skiptið 1-3. Allt annað var að sjá til KA-manna í þessum leik en þó vantar heilmikið uppá til að
rúlla upp reynslumiklu og massífu liði sem Þróttur er. Röndóttu Reykvingingarnir eru nú langefstir í deildinni en KA heldur öðru
sætinu.
05.12.2008
KA-menn áttu ekki sjö dagana sæla í kvöld þegar þeir voru flengdir harkalega af liðinu sem spilar í ljótustu búningum á
landinu. Reykjavíkur-Þróttarar voru í miklum ham og rúlluðu yfir KA í þremur hrinum. Liðin eigast við aftur á morgun, laugardag og er
leikurinn kl 14:00.
05.12.2008
KA og Þróttur mætast í kvöld kl: 20:00´í fyrsta sinn í vetur en bæði liðin er taplaus í 1. deild karla og með jafn
mörg stig en Þróttarar eru þó í toppsætinu með færri tapaðar hrinur. Leikurinn fer fram í KA heimilinu. Liðin mætast svo
aftur á laugardag kl. 14:00 einnig í KA heimilnu.
02.12.2008
Toppslagur verður í blakinu um helgina en tvö lið eru ósigruð í 1. deild karla þar sem af er keppnistímabilsins. Það eru lið KA og
Þróttar Reykjavík. Um helgina mætast þessi lið í tvígang á Akureyri þar sem það skýrist hvaða lið verður
á toppi deildarinnar eftir tvær umferðir.
01.12.2008
Það var hart tekist á í leikjum KA gutta og Hamars um helgina enda mættust þar feðgar. Svo fór að synirnir höfðu betur enda má segja
að þeir hafi haft nokkra forgjöf hvað hæðina varðar eins og þessi stórskemmtilega mynd sem fylgir fréttinni sýnir.
25.11.2008
Haustmót Blakdeildar KA fór fram um liðna helgi á Akureyri. KA hefur haldið opið haustmót í nóvember í rúmlega 10 ár
eða allt frá því að liðið hóf að senda lið á öldungamótin í blaki 1995. Nýliðið haustmót er eitt
hið stærsta sem haldið hefur verið hjá KA en alls mættu 24 lið - 15 kvennalið og 9 karlalið. Óvenju mörg lið komu að langt
að að þessu sinni en 15 liðanna voru lið utan Akureyrar, þar af 6 frá suðvesturhorninu og 1 frá Austfjörðum.
15.11.2008
KA-menn eru nú á toppnum í blakinu eftir tvo góða sigra á Stjörnunni um helgina. Á föstudagskvöld vann KA nokkuð öruggan 3-1
sigur og í dag endurtóku þeir leikinn þótt sigurinn hafi verið mun torsóttari.