Fréttir

Júdóstelpur öflugar

Um helgina fór fram Afmælismót JSÍ í aldursflokknum 15-19 ára.  KA átti 3 keppendur á mótinu, þær Helgu Hansdóttur, Fionu Ýr Sigurðardóttur og Kristínu Ástu Guðmundsdóttur.

KA með 6 verðlaun á RIG, enn einn sigur hjá Helgu.

Sameinað júdómót Reykjavik International Games og afmælismóts JSÍ var haldið í Ármannsheimilinu í dag. Keppendur voru tæplega 100 talsins og komu frá öllum júdófélögum landsins.

KA átti 9 Íslandsmeistara á árinu - allir úr júdódeild

Í dag veitti Íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar þeim viðkenningu sem orðið höfðu Íslandsmeistarar árið 2009 í árlegu hófi. KA átti alls 9 Íslandsmeistara og voru þeir allir úr júdódeild.

Helga valin efnilegasta júdókona landsins.

Júdósamband Íslands kynnti í dag val sitt á júdófólki ársins.  Júdómaður ársins er Þormóður Árni Jónsson JR, júdókona ársins er Anna Soffía Víkingsdóttir Ármanni.  Efnilegasti júdómaður ársins var valinn Sævar Róbertsson JR og efnilegasta júdókona ársins var valinn Helga Hansdóttir KA.  Árangur hennar á árinu er vægast sagt glæsilegur, en hann er eftirfarandi:

Frábær árangur júdófólks KA í Danmörku, 3 gull og 3 brons.

Um helgina fór fram í Danmörku alþjóðlegt júdómót fyrir yngri en 20 ára.  KA átti 3 keppendur á þessu móti, þau Bergþór Stein Jónsson, Adam Brands Þórarinsson og Helgu Hansdóttur.  Árangur þeirra var frábær.  Bergþór sigraði í -66kg flokki og hlaut brons í opnum flokki.  Adam sigraði í -81kg flokki og hlaut brons í opnum flokki. Helga sigraði í opnum flokki og hlaut brons í -57kg flokki.

Kyu-mót JSÍ og Bikarmót JSÍ

Kyu-mót JSÍ í öllum aldursflokkum fór fram laugardaginn 14. nóvember í júdósalnum.  Keppendur voru 88 frá 6 félögum.  Mótið tókst mjög vel.  Skipting verðlauna varð eftirfarandi:

Okkar júdómaður í Noregi góður.

Í dag fór fram sterkt júdómót í Þrándheimi í Noregi.  KA átti þar einn keppanda, Björn Harðarson (Blöndal).  Hann keppti í -73kg. flokki og sigraði alla andstæðinga sína á ippon og vann því til gullverðlauna.  Björn starfar sem verkfræðingur í Noregi og keppti að sjálfsögðu undir merkjum KA á mótinu eins og hann hefur alltaf gert, en hann er margfaldur Íslandsmeistari í júdó.

Frábær sigur hjá Bergþóri á Haustmóti JSÍ.

Haustmót JSÍ fór fram um síðustu helgi.  KA átti 8 keppendur á mótinu og unnu þeir til 1 gullverðlauna, 3 silfurverðlauna og 1 bronsverðlauna.  Frammistaða þeirra var eftirfarandi:

Landsmót UMFÍ 2009 - úrslit viðureigna

Hér í pdf skjali er hægt að nálgast yfirlit yfir allar viðureignir mótsins.  Athugið að þessar upplýsingar eru skráðar eftir mótið og eru settar fram með fyrirvara. Villur geta hafa slæðst inn við gerð hennar. Úrslit viðureigna á Landsmóti UMFÍ Myndir frá landsmótinu (Ljósmyndari: Karl Frímannsson).

Landsmót UMFÍ 2009 - úrslit

Hér er hægt að úrslit í júdómótinu á Landsmóti UMFÍ 2009.    Úrslit  - Landsmót UMFÍ 2009 (excell skjal) Stigakeppni félaganna Íþróttabandalag Akureyrar 143 Íþróttabandalag Reykjavíkur 41 Ungmennafélag Grindavíkur 34 Ungmennasamband Eyjafjarðar 29 Ungmennafélag Njarðvíkur 9 Nánari úrslit og myndir koma bráðlega