Flýtilyklar
Stelpurnar eru klárar fyrir veturinn!
Blakveislan hefst með látum á morgun, laugardag, þegar stelpurnar okkar mæta Aftureldingu í keppni Meistara Meistaranna kl. 16:00 að Varmá. Stelpurnar okkar eru heldur betur klárar í slaginn og tókum við púlsinn á þeim Amelíu Ýr og Lovísu Rut fyrir fyrsta leik tímabilsins.
Við stelpurnar í meistaraflokki blaki erum klárar í tímabilið sem hefst með leik á móti Aftureldingu í Mosó á laugardaginn í keppni um Meistari Meistaranna. Síðan er fyrsti heimaleikurinn okkar í deildinni 21. september á móti Álftanes.
Hið svokallaða ,,pre season" hefur farið vel af stað hjá okkur en við höfum fengið tvær efnilegar stelpur að austan í hópinn sem eru að koma norður í skóla en það eru þær Sóldís Júlía og Diljá Mist. Þá hefur Lucia Martín Carrasco einnig bæst í hópinn en hún spilaði með Þrótti Fjarðabyggð á síðasta tímabili og erum við spenntar að fá hana norður.
Stelpurnar eru ríkjandi Íslandsmeistarar
Alls voru þrjár stelpur í liðinu okkar óléttar á seinasta tímabili en það voru systurnar Helena og Heiða og síðan Valdís Kapitola en Valdís stefnir á að koma sterk inn í seinni hluta tímabilsins. Arnrún Eik sleit krossband á síðustu leiktíð en er að koma sterk til baka og frábært að sjá hana koma aftur.
Annars er hópurinn afar sterkur enda kjarninn í liðinu búinn að vera saman undanfarin ár. Það ríkir mjög góð stemning í hópnum og ekki skemmdi fyrir frábær ferð til Spánar í sumar þar sem við héldum út í ógleymanlegt brúðkaup hjá Paulu og Mateo.
Við erum spenntar að hefja nýtt tímabil og getum ekki beðið eftir að byrja. Við höfum verið afar sigursælar undanfarin ár en það er áfram mikið hungur í hópnum og stefnan sett hátt. Hlökkum til að sjá ykkur á pöllunum í vetur!