Stefán Árnason ráðinn til starfa hjá KA

Almennt | Handbolti
Stefán Árnason ráðinn til starfa hjá KA
Stefán ásamt Haddi Júlíusi, formanni hkd. KA

Stefán Árnason skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild KA. 

Stefán er ráðinn með það að markmiði að efla og styrkja Handknattleiksdeild KA. Hann er fyrsta ráðningin í þjálfarateymi nýstofnaðs meistaraflokks KA og auk þess mun hann stýra afreksþjálfun hjá félaginu. 

Stefán er uppalinn í KA og hóf sinn þjálfaraferil á gula og bláa gólfinu. Stefán hefur mikla reynslu í þjálfun og hefur m.a. þjálfað ÍBV.  Síðar meir tók Stefán við Selfoss og kom liðinu í deild þeirra bestu, ásamt því að stýra liðinu í vetur og náði mjög flottum árangri í efstu deild. 

KA-menn eru gríðarlega ánægðir með þessa ráðningu enda metnaðurinn mikill hjá félaginu. Við bjóðum Stefán hjartanlega velkominn heim. 

 

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is