Flýtilyklar
Skemmtimót KA í strandblaki á fimmtudaginn
Blakdeild KA stendur fyrir skemmtimóti í strandblaki á fimmtudaginn, 15. júlí, og má reikna með miklu fjöri á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi. Fyrirkomulagið er að spilað verður í kynjaskiptum deildum þar sem liðunum verður raðað í deildir eftir styrkleika.
Að vanda er keppt í tveggja manna liðum en skráningar og óskir sendist á netfangið: blak@ka.is. Við skráningu þarf að koma fram kennitala, netfang og símanúmer beggja liðsmanna í skráningunni.
Skráningarfrestur og staðfesting (eða afskráning fyrri skráningar) er til hádegis miðvikudaginn 14. júlí. Mótsgjald er 2.500.- krónur á hvern einstakling og greiðist inn á reikning 0162-26-102289, kt.670890-2289.
Smelltu hér til að skoða leikjaplan mótsins
Mótið hefst klukkan 16:00 og hlökkum við svo sannarlega til að sjá ykkur í sandinum!