Pop up æfing fyrir öfluga handboltakrakka!

Handbolti
Pop up æfing fyrir öfluga handboltakrakka!
Ott Varik miðlar af töfrum sínum!

Ott Varik, leikmaður KA og töframaður í hægra horninu, ætlar að vera með pop-up æfingu í KA-Heimilinu á þriðjudaginn frá klukkan 18:00 til 19:00. Þetta er tilvalin aukaæfing fyrir öfluga handboltakrakka til að bæta sig og frábært tækifæri til að læra af Ott!

Skráning er á Sportabler fyrir alla krakka í KA og KA/Þór frá 4. flokki til 6. flokks. Ekki missa af þessu magnaða tækifæri!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is