Flýtilyklar
Myndband frá fyrsta bikartitli KA í blaki kvenna
KA varð um helgina Bikarmeistari í blaki kvenna er liðið vann 3-1 sigur á HK í þrælskemmtilegum úrslitaleik. Þetta var fyrsti Bikartitill KA í kvennaflokki og var fögnuðurinn eðlilega ansi mikill í leikslok. Hér má sjá skemmtilega samantekt frá úrslitaleiknum og viljum við aftur óska liðinu sem og öllum sem að því koma til hamingju með þennan frábæra sigur.
Leikurinn var í beinni útsendingu á RÚV og klippti Ágúst Stefánsson saman myndbandið úr útsendingu RÚV.
Bikarmeistarar KA í blaki kvenna 2019:
Andrea Þorvaldsdóttir, Arnrún Eik Guðmundsdóttir, Ásta Lilja Harðardóttir, Birna Baldursdóttir, Eyrún Tanja Karlsdóttir, Gígja Guðnadóttir, Halldóra Margrét Bjarnadóttir, Heiðrún Júlía Gunnarsdóttir, Helena Kristín Gunnarsdóttir, Helga Guðrún Magnúsdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Jóna Margrét Arnarsdóttir, Kolbrún Björg Jónsdóttir, María José Ariza Sánchez, Luz Medina, Ninna Rún Vésteinsdóttir, Paula Del Olmo Gomez og Sóley Karlsdóttir. Miguel Mateo Castrillo er þjálfari liðsins.
Þá bendum við á að úrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitilinn er að hefjast um helgina og eiga stelpurnar fyrsta leik sinn í undanúrslitum á sunnudaginn í KA-Heimilinu kl. 13:00 en það kemur í ljós annaðkvöld hver andstæðingur þeirra verður.