Meistarar Meistaranna á sunnudaginn

Blak
Meistarar Meistaranna á sunnudaginn
KA liðin ætla sér að landa fyrstu titlum vetrarins

Blaktímabilið hefst á sunnudaginn þegar karla- og kvennalið KA berjast um Meistarar Meistaranna. Leikið verður á Hvammstanga og verður virkilega spennandi að sjá standið á liðunum fyrir komandi vetur.

Eins og flestir ættu að vita unnu karla- og kvennalið KA alla þá titla sem í boði voru á síðustu leiktíð og ljóst að metnaðurinn í starfinu er gríðarlegur. Karlarnir munu byrja daginn klukkan 14:00 þegar þeir mæta liði Álftaness en liðin mættust í Bikarúrslitunum í fyrra.

Í kjölfarið taka konurnar við en KA mætir þar liði HK en liðin börðust allsvakalega um titlana þrjá í fyrra og því við hæfi að þau mætist í þessari skemmtilegu keppni.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á Hvammstanga en fyrir þá sem ekki komast alla leiðina á Hvammstanga þá verða leikirnir í beinni útsendingu á SportTV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is