Kyu-mót JSÍ og Bikarmót JSÍ

Júdó
Kyu-mót JSÍ í öllum aldursflokkum fór fram laugardaginn 14. nóvember í júdósalnum.  Keppendur voru 88 frá 6 félögum.  Mótið tókst mjög vel.  Skipting verðlauna varð eftirfarandi:



1 Júdófélag Reykjavíkur: 8, gull,  10 silfur og 7 brons.
2 KA: 8 gull,  7 silfur og 3 brons.
3 Grindavík: 4 gull, 2 silfur og 2 brons.
4 ÍR: 3 gull, 5 silfur og 2 brons.
5 Selfoss: 3 gull, 1 silfur og 2 brons.
6 UMF Samherjar: 1 silfur og 1 brons.

Sama dag fór fram 3. umferð Bikarmóts JSÍ í aldursflokknum 11-14 ára.  Þar er um að ræða liðakeppni þar sem að 2 lið falla út í hverri umferð.  KA átti lið í þessu móti og komst það áfram í 4. og síðustu umferð sem fram fer í desember.

Öll úrslit er hægt að skoða á heimasíðuJSÍ.

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is