Flýtilyklar
Komdu í júdó!
23.08.2021
Júdó
Æfingar júdódeildar KA hefjast 6. september næstkomandi og hvetjum við alla sem hafa áhuga á að kíkja á æfingu upp í júdósal KA-Heimilisins og upplifa þessa stórskemmtilegu íþrótt.
Júdó hentar þeim sem vilja stunda íþrótt til að komast í form og vera í góðum félagsskap. Júdó er fyrir stóra, litla, létta, þunga, unga, gamla og alla þar á milli, það er svo sannarlega pláss fyrir alla í júdó!
Vertu með og dragðu vini/vinkonur með á æfingu.
Skráningar fara fram í gegnum Sportabler.