Flýtilyklar
Keppa á BUDO NORD CUP í Svíðjóð
29.05.2019
Júdó
Á morgun hefst Budo-Nord CUP í Svíþjóð. Þar á Júdódeild KA fjóra fulltrúa en þátttakendur eru um 550 frá um 15 löndum. Í framhaldi eru svo æfingabúðir fram á sunnudag en u.þ.b. 1000 manns hafa verið í æfingabúðunum undanfarin ár.
Ferðin hefur verið árleg og er mikið ævintýri fyrir þá sem taka þátt. Adam Brands þjálfari er fararstjóri og tekur þátt í þriggja daga þjálfarabúðum sem fara fram sömu daga. Hægt verður að fylgjast með framvindu mótsins og horfa á streymi hér.
Þeir sem keppa á morgun eru:
- Birkir Bergsveinsson U15 -60 kg flokkur.
- Gylfi Rúnar Edduson U18 -66 kg flokkur.
- Hannes Snævar Sigmundsson U18 -60 kg flokkur.
- Kristín Embla Guðjónsdóttir U21 -78 kg flokkur.
Við óskum þeim góðs gengis.