Flýtilyklar
Karl þrefaldur Íslandsmeistari á ÍM 17-19 ára, Helga glímdi með strákunum...og vann.
18.03.2012
Júdó
Íslandsmót 15-16 ára og 17-19 ára fór fram í Reykjavík í gær. KA átti 7 keppendur á mótinu og fóru
þau vægast sagt á kostum.
15-16 ára:
Arnar Þór Sigurðsson var með silfur í -60, hann fékk á sig skor á síðustu augnablikum úrlsitaglímunnar. Þorgeir Atli Hávarsson vann gull í -66, annað árið í röð. Sigurður Orri Sigurðsson var að keppa á sínu fyrsta móti. Hann tapaði bronsglímu á kolólegum hálslás/hryggspennu í -81, slæm mistök óreyndra dómara. Þeir félagar Arnar, Þorgeir og Orri glímdu svo til úrslita í sveitakeppninni en töpuðu 3-2 fyrir JR. Astrid Stefánsdóttir átti að keppa í -70kg flokki stúlkna, því miður urðu afföll í þeim flokki svo hún þurfti að glíma í opnum flokki við andstæðing sem var ca. 20kg þyngri. Hún tapaði þeirri viðureign að lokum en var þó lengi vel yfir. Í heildina mjög góð frammistaða hjá krökkunum.
17-19 ára:
Breki Bernharðsson keppti í -73kg flokki og varð í 2. sæti. Karl Stefánsson keppti í +100kg flokki og sigraði með yfirburðum. Helga Hansdóttir sigraði álíka örugglega í -63kg flokki stúlkna. Karl og Breki glímu svo til úrslita í opnum flokki og þar sigraði Karl.
Þá var komið að sveitakeppni 17-19 ára en keppt er í 5 manna sveitum. Þar sem að KA átti aðeins tvo keppendur í þessum aldursflokki var ljóst að þeir gæti ekki teflt fram sveit. KA óskaði eftir því við hin félögin að Helga fengi að keppa með strákunum, þá væri þau orðin 3 og keppnisfær, þurfti að vísu alltaf að gefa 2 viðureignir fyrirfram vegna þess að þeim vantaði tvo keppendur, þau byrjuðu því alltaf undir 0-2. Það skipti engu máli því að þau unnu allar viðureignir, fóru vægast sagt á kostum. Eftir keppnina höfðu þjálfarar hinna liðanna orð á því að það hefðu verið mikil mistök að samþykkja Helgu í piltasveitina.
Skipting verðlauna:

Félag | I | II | III | ||
---|---|---|---|---|---|
1. | KA | 4 | 4 | 0 | |
2. | JR | 4 | 2 | 2 | |
3. | ÍR | 3 | 1 | 2 | |
4. | UMFG | 2 | 2 | 1 | |
5. | UMFS | 2 | 2 | 0 | |
6. | UMFN | 1 | 1 | 3 | |
7. | Ármann | 0 | 3 | 1 | |
8. | UMFÞ | 0 | 1 | 1 |