Flýtilyklar
KA fagnar 94 ára afmæli sínu í dag
08.01.2022
Almennt
KA fagnar í dag 94 ára afmæli sínu og munum við halda upp á tímamótin með glæsilegum afmælisþætti á KA-TV sem birtur verður kl. 15:30 á morgun, sunnudag. Hægt verður að nálgast þáttinn hér á heimasíðunni sem og á YouTube rás KA-TV.
Þar munum við fara yfir blómlegt ár sem nú er liðið og tilkynna íþróttakarl og íþróttakonu ársins, auk þess að velja lið og þjálfara ársins hjá félaginu. Böggubikarinn verður einnig afhentur og Ingvar Már Gíslason formaður KA flytur ávarp sitt.