Flýtilyklar
Júdóæfingar falla niður þessa viku
03.10.2021
Almennt | Júdó
Kæru foreldrar og iðkendur í júdó.
Vegna aukinna smita í grunnskólum Akureyrar hefur stjórn júdódeildar ákveðið að fella niður æfingar hjá grunnskólakrökkum út komandi viku (4. - 8. október). Við vonum að á þessum tíma dragi verulega úr smitum og fólki í sóttkví. Þetta er ekki auðveld ákvörðun en við teljum hana rétta. Júdó er mikil návígisíþrótt þannig að ef smit kæmi upp í gegnum júdóið er mjög líklegt að margir smitist á sama tíma. Vonandi lagast þetta fljótt.
Með vinsemd og virðingu, Stjórn og þjáfarar júdódeildar KA