Flýtilyklar
Júdóæfing 19. ágúst 2008
Mættir: Ódi, Ingþór, Hans, Aggi, Pétur.
Dagsskrá æfingar:
Dagsskrá æfingar: Æfingin fór fram í Kjarnaskógi. Veðrið var magnað, logn og þokkalegur hiti. Rignt hafði rétt fyrir æfinguna svo blautt var á sem gerði aðstæður enn betri. Við æfðum með dótið sem við keyptum af Steve Maxwell, bönd sem kallast "jungle-gym" og svo græju sem kallast "power-wheel". Við notuðum böndin aðallega við margskonar upphýfingar, en líka við armbeygjur. Einnig vorum við með fjórar ketilbjöllur, 12 og 16 kg. Þær voru notaðar í sveiflur, upprisur, pressur og stórskemmtilega dauðagöngu. Í lok æfingar tóku 4/5 hlutar hópsins létta æfingu á vír sem strengdur er í einu leiktækinu þarna. Í heildina fín æfing.
Hápunktur æfingarinnar: Með reglulegu millibili áttu þarna leið hjá hópar af konum í
heilsubótargöngu. Þessar myndarlegu dömur virkuðu mjög hvetjandi, þó segja megi að aldursdreifingin hafi verið þannig að elsti
meðlimurinn hafa eflst mest.