Flýtilyklar
Jóna og Ninna með U-17 til Danmerkur
12.10.2018
Blak
KA á tvo fulltrúa í U-17 ára landsliði Íslands í blaki kvenna sem tekur þátt í NEVZA mótinu í Ikast í Danmörku í næstu viku. Þetta eru þær Ninna Rún Vésteinsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir og óskum við þeim að sjálfsögðu til hamingju með valið.
Stelpurnar æfðu á Húsavík síðustu helgi og var hópurinn svo skorinn niður í 12 manna hóp sem fer á mótið sterka. Hópurinn fer út á sunnudag og leika svo frá mánudegi til fimmtudags. Við óskum liðinu góðs gengis í Danmörku.