Háspennuleikur í Kjörísbikarnum

Blak
Háspennuleikur í Kjörísbikarnum
Fúsi og strákarnir eru klárir í slaginn!

KA sækir Aftureldingu heim í 8-liða úrslitum Kjörísbikars karla í blaki klukkan 15:00 í dag. Strákarnir eru ríkjandi Bikarmeistarar og ætla sér í úrslitahelgina rétt eins og kvennalið KA sem tryggði sér sæti þar með sigri á Þrótti Nes. á dögunum.

Það má hinsvegar reikna með hörkuleik en bæði lið hafa verið að leika afar vel að undanförnu og berjast á toppi Mizunodeildarinnar. Úrslitahelgin í Kjörísbikarnum þar sem undanúrslit og úrslitaleikir karla og kvenna fara fram er án nokkurs vafa stóri viðburðurinn í blakheiminum hér á landi og ekki nokkur spurning að þar vilja öll lið vera.

Það verður því spennandi að sjá hvernig leikurinn í dag spilast en hann verður í beinni á streymissíðu BLÍ fyrir þá sem ekki komast að Varmá, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is