Flýtilyklar
Hans Rúnar Norðurlandameistari í júdó 30 ára og eldri
08.05.2010
Júdó
Norðurlandamótið í júdó fer nú fram í Reykjavik. Í dag var keppt í flokkum fullorðinna og 30 ára og eldri. Hans
Rúnar Snorrason gerði sér lítið fyrir og sigraði glæsilega í -73kg flokki karla eldri en 30 ára. Hans sigraði norðmann í
úrslitaglímunni með mjög sannfærandi hætti.
Vilhelm Þorri Vilhelmsson keppti einnig í flokki karla eldri en 30 ára. Hann keppti í -90kg og gerði mjög vel með því að vinna til bronsverðlauna eftir að hafa verið í hörkubaráttu um silfrið.
Í flokki fullorðinna unnu KA-menn til þriggja verðlauna. Arnar Már Viðarsson gerði afar vel í +100kg en þar vann hann til silfurverðlauna sem er hans langbesti árangur hingað til á móti.
Ingþór Örn Valdimarsson vann til bronsverðlauna í -100kg en hann tapaði mjög naumlega í undanúrslitum og var grátlega nærri því að komast í gullbaráttu.
Eyjólfur Guðjónsson vann svo til bronsverðlauna í -66kg eftir hörkubaráttu.
A morgun fer fram keppni í yngri en 20 ára og þar eigum við KA menn 7 keppendur.