Flýtilyklar
Guðlaugur Arnarsson í þjálfarateymi KA
02.09.2022
Handbolti
Guðlaugur Arnarsson kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla í handbolta og verður Jónatani Magnússyni til aðstoðar. Ásamt því mun Gulli, eins og hann er alltaf kallaður, sjá um U-lið og 3. fl karla með Sverre Jakobssyni.
Gulli er vandanum vaxinn í þjálfun og hefur þjálfað bæði hjá Val og Fram. Hann lék mörg ár í efstu deild á Íslandi og erlendis um tíma. Hann þjálfaði síðan Fram í þrjú ár og Val í önnur þrjú og varð liðið Íslands- og bikarmeistari undir stjórn hans og Óskars Bjarna Óskarssonar.
Við bjóðum Gulla velkominn í þjálfarateymi KA, sem einmitt hefja leik á morgun gegn Val í leik Meistara Meistaranna á Hlíðarenda kl. 16:00