Frábær sigur í fyrri leiknum í Austurríki!

Handbolti

KA sótti Austurríska liðið HC Fivers heim í fyrri leik liðanna í EHF European Cup í dag og eftir æsispennandi leik gerðu strákarnir sér lítið fyrir og knúðu fram dísætan 29-30 sigur og leiða því einvígið með einu marki fyrir síðari leikinn sem er á morgun klukkan 16:15 að íslenskum tíma.

Báðir leikirnir fara fram ytra en leikur morgundagsins er skráður sem heimaleikur KA. Leikmenn Fivers byrjuðu leikinn betur og voru með frumkvæðið framan af. Þeir náðu mest fimm marka forskoti í stöðunni 13-8 í fyrri hálfleik en strákarnir okkar fundu taktinn betur og betur er leið á og voru hálfleikstölur 15-12 Fivers ívil.

Strákunum gekk vel að keyra á Austurríska liðið og tókst loks að jafna metin í 19-19 og í kjölfarið forystunni í 19-20 eftir tíu mínútur í síðari hálfleik. Svakaleg spenna var í húsinu og var jafnt á nánast öllum tölum næstu mínúturnar. Er um tíu mínútur lifðu leiks leiddu Fivers 24-23 en frábær kafli KA liðsins breytti stöðunni í 25-27 og létu strákarnir þá forystu ekki af hendi.

Á lokamínútunni komst KA í 28-30 en heimamenn löguðu stöðuna með lokamarkinu og lokatölur því 29-30 eftir hörkuleik. Það er því ljóst að þetta einvígi er stál í stál og heldur betur galopið eftir fyrri leikinn.

Einar Rafn Eiðsson var markahæstur í liði KA með 9 mörk en næstur kom Dagur Gautason með 8 mörk. Gauti Gunnarsson gerði 5, Allan Norðberg 4, Einar Birgir Stefánsson 2 og þeir Arnór Ísak Haddsson og Dagur Árni Heimisson sitt markið hvor.

Í markinu varði Bruno Bernat 8 skot en hann kom inn af gríðarlegum krafti og var með um 62% markvörslu á lokakaflanum góða. Þá varði Nicholas Satchwell 6 skot fyrri part leiks.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is