Fimm frá KA/Þór í yngrilandsliðum Íslands

Handbolti
Fimm frá KA/Þór í yngrilandsliðum Íslands
Bergrós, Sif og Lydía eru í U18 hópnum

KA/Þór á fimm fulltrúa í æfingahópum yngrilandsliða Íslands í handbolta en hóparnir koma saman til æfinga dagana 29. febrúar til 3. mars næstkomandi. Er þetta flott viðurkenning á okkar flotta kvennastarfi og óskum við stelpunum okkar til hamingju með valið.

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, Lydía Gunnþórsdóttir og Sif Hallgrímsdóttir eru í U18 ára landsliðinu en því stýra þau Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón Friðbjörn Björnsson.

Þá eru þær Bríet Kolbrún Hinriksdóttir og Hafrún Linda Guðmundsdóttir í U15 ára landsliðinu sem þær Hildur Þorgeirsdóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir stýra.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is