Ekki missa af golfmóti handknattleiksdeildar

Handbolti
Ekki missa af golfmóti handknattleiksdeildar
Skemmtilegur dagur framundan á Jaðarsvelli

Handknattleiksdeild KA stendur fyrir stórglæsilegu styrktarmóti í golfi á Jaðarsvelli á laugardaginn og eru enn nokkur pláss eftir. Keppt verður eftir texas scramble fyrirkomulagi, tveir og tveir saman í liði og má reikna með ansi skemmtilegri keppni og verða allar 18 holurnar spilaðar.

Hámarksforgjöf hvers leikmanns er 24 fyrir karla og 28 fyrir konur. Leikforgjöf liðs er reiknuð samanlögð vallarforgjöf beggja leikmanna deilt með 3. Flott verðlaun verða veitt fyrir fimm efstu sætin ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 holum vallarins, þá verða einnig gefin verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 15. braut.

Við hvetjum ykkur eindregið til að skrá ykkur sem fyrst til að missa ekki af þessu skemmtilega móti. Smelltu hér til að skrá þig á mótið.

Athugið að það þarf að hringja í síma 462-2974 eða senda tölvupóst á skrifstofa@gagolf.is til að skrá sig á rástíma í mótinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is