Strandblaksæfingar hefjast 5. júlí

Blak
Strandblaksæfingar hefjast 5. júlí
Strandblak er tær snilld!

Blakdeild KA verður með skemmtilegar strandblaksæfingar fyrir U12 og U14/U16 ára hópa í júlí og ágúst. Strandblaksæfingarnar hafa slegið í gegn undanfarin ár og ljóst að það ætti enginn að láta þetta framtak framhjá sér fara.

Æfingarnar hefjast mánudaginn 5. júlí og mun Valdís Kapitola stýra æfingunum en Valdís er leikmaður meistaraflokks kvenna og mun hún einnig fá fleiri leikmenn liðsins til að koma og leiðbeina krökkunum í sandinum.

Allar æfingarnar fara fram á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi og eru æfingatímarnir eftirfarandi:

U12 æfir klukkan 13:00 á mánudögum og miðvikudögum

U14 og U16 æfir klukkan 16:30 á mánudögum og miðvikudögum.

Æfingagjöld fyrir júlí og ágúst eru aðeins 10.000 krónur. Vonum að sjá sem flesta!

Smelltu hér til að skrá þig á æfingarnar


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is