KA Íslandsmeistari í blaki 2018

Blak
KA Íslandsmeistari í blaki 2018
Þrefaldir meistarar! (Mynd: Egill H)

KA tókst hið ótrúlega og hampaði í kvöld Íslandsmeistaratitlinum í blaki og vann liðið þar með allar þrjár keppnirnar í vetur. KA er því Deildar-, Bikar- og Íslandsmeistari, geri aðrir betur!

KA vann í kvöld frábæran 3-0 sigur á HK í þriðja leik liðanna í einvíginu um titilinn og vann þar með einvígið 3-0. Það er því ekki nokkur vafi að KA er besta blakliðið á Íslandi í dag.

Fyrsta hrinan var gríðarlega jöfn og spennandi og voru það gestirnir sem leiddu lengst af en KA liðið var aldrei langt undan. Það var svo á lokasprettinum sem KA seig framúr og vann að lokum 25-22 sigur og KA-Heimilið sem var þéttsetið fagnaði gríðarlega.

Næsta hrina var líkt og sú fyrri hnífjöfn og spennandi. En þegar líða fór á tók KA liðið kipp og náði góðu taki á leiknum. Gestirnir áttu fá svör við góðri spilamennsku KA liðsins og undir lokin var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda, KA vann 25-17 og komið í 2-0. Stemningin í húsinu algjörlega frábær.

KA liðið var greinilega búið að finna taktinn og náði strax góðri forystu í þriðju hrinunni. Munurinn á liðunum var 3-5 stig mest alla hrinuna en undir lokin þá náði KA liðið að bæta enn frekar við og vann á endanum öruggan 25-15 sigur og samanlagt 3-0.

Draumurinn um þrennuna varð því að veruleika og óskum við liðinu sem og öllum sem komu að starfinu í vetur til hamingju. Blakstarfið í KA er virkilega gott og öllum ljóst að það þarf allt að ganga upp svo að svona árangur náist, algjörlega til fyrirmyndar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is