Fyrsti heimaleikur strákanna er í kvöld

Blak
Fyrsti heimaleikur strákanna er í kvöld
Lexi er klár í slaginn!

KA tekur á móti Hamar Hveragerði í stórleik í Mizunodeild karla í blaki klukkan 20:15 í KA-Heimilinu í kvöld. Bæði lið ætla sér stóra hluti í vetur og má búast við hörkuleik en KA liðið tryggði sér á dögunum sigur í Ofurbikarnum og er þetta fyrsti leikur liðsins í deildinni í vetur.

Hamar er nýliði í efstu deild en er engu að síður með gríðarlega vel mannað lið og þekkjum við KA menn vel til nokkurra leikmanna liðsins. Tvíburaturnarnir Kristján og Hafsteinn Valdimarssynir eru komnir aftur til Íslands eftir ellefu ára reynslu erlendis auk þess sem fyrrum fyrirliði KA Hilmar Sigurjónsson hefur dregið fram skóna á ný.

Athugið að vegna Covid stöðunnar getur aðeins 101 áhorfandi mætt á leikinn og eru 16 ára og yngri inni í þeirri tölu. Miðasala hefst klukkutíma fyrir leik.

Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á KA-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is