Flottur árangur U-17 á Norðurlandamótinu

Blak
Flottur árangur U-17 á Norðurlandamótinu
Sölvi, Jóna og Heiðbrá voru fulltrúar KA á mótinu

U-17 ára landslið karla og kvenna í blaki luku í dag keppni á Nevza Norðurlandamótinu sem fram fór í Ikast í Danmörku. KA átti þrjá fulltrúa í hópnum en það voru þau Sölvi Páll Sigurpálsson, Jóna Margrét Arnarsdóttir og Heiðbrá Björgvinsdóttir. Þá var Halldóra Margrét Bjarnadóttir leikmaður KA fararstjóri hópsins.

Árangurinn á mótinu var góður og er klár bæting hjá landsliðunum okkar frá fyrri mótum. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og komust í leikinn um 3. sætið sem reyndar tapaðist gegn Danmörku og 4. sætið á mótinu því staðreynd.

Stelpurnar enduðu í 5. sætinu eftir glæsilegan sigur í oddahrinu á Noregi í lokaleiknum og geta verið ansi ánægðar með spilamennskuna að mestu leiti.

Það er ljóst að það er mikill uppgangur í blakinu og verður gaman að fylgjast með báðum þessum liðum í náinni framtíð.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is