6 fulltrúar KA í A-landsliðum BLÍ

Blak
6 fulltrúar KA í A-landsliðum BLÍ
Magnaðir fulltrúar KA í hópnum

KA á alls sex fulltrúa í æfingahópum karla- og kvenna landsliða Íslands í blaki, þrjá í karla- og þrjá í kvennaliðinu. Þetta eru þau Filip Pawel Szewczyk, Sigþór Helgason, Alexander Arnar Þórisson, Helena Kristín Gunnarsdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir og Gígja Guðbrandsdóttir.

Framundan hjá landsliðunum eru smáþjóðaleikarnir en þeir fara fram í maí og mun hópurinn æfa af krafti er maí mánuður hefst og blaktímabilinu lokið hér heima.

Þá voru einnig tilkynntir æfingahópar fyrir U-21 og U-17 ára landslið kvenna sem fara í æfingabúðir um páskana. Í U-21 hópnum eru þær Heiðrún Júlía Gunnarsdóttir, Sóley Karlsdóttir og Andrea Þorvaldsdóttir úr KA og í U-17 hópnum eru þær Bríet Ýr Gunnarsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir.

Við óskum okkar fulltrúum til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is