Okkar júdómaður í Noregi góður.

Í dag fór fram sterkt júdómót í Þrándheimi í Noregi.  KA átti þar einn keppanda, Björn Harðarson (Blöndal).  Hann keppti í -73kg. flokki og sigraði alla andstæðinga sína á ippon og vann því til gullverðlauna.  Björn starfar sem verkfræðingur í Noregi og keppti að sjálfsögðu undir merkjum KA á mótinu eins og hann hefur alltaf gert, en hann er margfaldur Íslandsmeistari í júdó.
Lesa meira

Frábær sigur hjá Bergþóri á Haustmóti JSÍ.

Haustmót JSÍ fór fram um síðustu helgi.  KA átti 8 keppendur á mótinu og unnu þeir til 1 gullverðlauna, 3 silfurverðlauna og 1 bronsverðlauna.  Frammistaða þeirra var eftirfarandi:
Lesa meira

Landsmót UMFÍ 2009 - úrslit viðureigna

Hér í pdf skjali er hægt að nálgast yfirlit yfir allar viðureignir mótsins.  Athugið að þessar upplýsingar eru skráðar eftir mótið og eru settar fram með fyrirvara. Villur geta hafa slæðst inn við gerð hennar.

Lesa meira

Landsmót UMFÍ 2009 - úrslit

Hér er hægt að úrslit í júdómótinu á Landsmóti UMFÍ 2009.

   Úrslit  - Landsmót UMFÍ 2009 (excell skjal)

Stigakeppni félaganna

Íþróttabandalag Akureyrar 143
Íþróttabandalag Reykjavíkur 41
Ungmennafélag Grindavíkur 34
Ungmennasamband Eyjafjarðar 29
Ungmennafélag Njarðvíkur 9

Nánari úrslit og myndir koma bráðlega
Lesa meira

Helga Hansdóttir keppir á Ólympíuleikum æskunnar.

Helga Hansdóttir mun keppa á Ólympíuleikum æskunnar í Finnlandi í sumar. 
Lesa meira

Ingþór, Bergþór og Helga sigruðu á Vormóti KA í júdó.

Vormót KA í júdó fór fram síðasta miðvikudag. 
Lesa meira

Sumartímar í júdó

Æfingatímar í júdó breytast frá og með deginum í dag og verða með eftirfarandi hætti í sumar:

Mánudagar kl. 20:00 - 21:30: Júdó.
Þriðjudagar kl. 20:00 - 21:30: Þrek.
Miðvikudagar kl. 20:00 - 21:30: Júdó.
Fimmtudagar kl. 20:00 - 21:30: Þrek.
Föstudagar kl. 20:00 - 21:30: Júdó.

Þrekæfingar verða til að byrja með í KA-heimilinu.
Lesa meira

Norðurlandamótið í júdó - fréttir af okkar fólki

Sunnudagur kl. 11:20
Eyjólfur keppti í fullorðinsflokki í -66kg.  Hann tapaði fyrstu glímu en fékk uppreisn sem hann tapaði einnig.  Hann hefur því lokið þátttöku.

13:40
Eyjólfur fékk uppreisn en tapaði henni.  Þau eru því bæði búin í dag.  Eyjólfur keppir svo á morgun í fullorðinsflokki.

12:47
Helga keppti eina glímu í U20 sem hún tapaði.  Móherji hennar var Sabina Simmelhag 
Eyjólfur tapaði fyrstu glímunni sinni í U20 og ekki enn vitað hvort hann fær uppreisn.

11:20
Helga og Eyjólfur eru að öllum líkindum að hefja keppni í U20

11:20
Helga er búin að keppa í U17.  Hún tapaði báðum glímum og hafnaði í 3. sæti.  Lenti í fastataki í annarri glímunni en í hinni sigraði andstæðingur hennar með 2 yuko.
Lesa meira

Norðurlandamótið í júdó er um helgina

Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að fylgjast með úrslitum NM 2009 á slóðinni:
http://www.judokisa.net/kisa/pm2009/index.html

KA menn eiga tvo keppendur, þau Helgu Hansdóttur og Eyjólf Guðjónsson.  Íslenskir keppendur eru alls 17.  Helga keppir í -57 í aldursflokkunum U17 og U20.  Eyjólfur keppir í -66 í aldursflokkunum U20 og í fullorðinsflokki.
Keppt er í U17 í dag fyrir hád en U20 í dag e/hád. Fulorðinsflokkar eru á morgun.

Ef þið viljið skoða úrslit út frá nöfnum keppenda þá er hægt að smella vinstra megin á síðunni á flokkinn >Ottelijat > Maittain. Þá sjáið þið öll nöfn keppenda á mótinu, flokkuð eftir þjóðerni. Keppendur eru 373.

Kv
Hans R.

Lesa meira

Fjöldi Íslandsmeistaratitla í júdó orðinn 438.

KA vann sinn fyrsta Íslandsmeistartitil í júdó árið 1979 er Þorsteinn Hjaltason varð Íslandsmeistari.  Nú 30 árum síðar eru titlarnir orðnir 438.  Það eru 135 einstaklingar sem hafa unnið þessa titla.  Flesta titla hefur Freyr Gauti Sigmundsson unnið, eða 25.  Af þeim sem enn eru að keppa er Bergþór Steinn Jónsson sá sem unnið hefur flesta titla en hann hefur unnið 9 sinnum.  Listi yfir Íslandsmeistara félagsins er að finna á júdósíðu KA.
Lesa meira

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is