Flýtilyklar
Vormót fullorðinna í júdó í KA-Heimilinu á laugardaginn
21.03.2018
Júdó
Vormót Júdósamband Íslands í flokki fullorðinna verður haldið næsta laugardag í KA-Heimilinu. Mótið hefst klukkan 10:00 og mótslok áætluð uppúr hádegi. Frítt verður inn og er íþróttaáhugafólk hvatt til að mæta enda er orðið langt síðan júdómót hefur verið haldið í KA-Heimilinu.
Á næsta ári vonast Júdódeild KA til þess að geta haldið fjölmennt mót á vegum JSÍ fyrir 21 árs og yngri þar sem keppt verður á tveim til þrem völlum. Vonumst til að sjá sem flesta.
Fyrir þá sem ekki komast á mótið þá verður það í þráðbeinni á KA-TV.