Sumaræfingar í júdó hefjast 10. júní

Júdó

Júdódeild KA verður með sumaræfingar í sumar rétt eins og fyrri ár. Æfingarnar hefjast 10. júní næstkomandi og verður æft í Laugagötu rétt hjá Sundlauginni. Athugið að æfingarnar eru ekki kynjaskiptar.

6-14 ára æfa tvisvar í viku og er það á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17:00-18:00. Þessi hópur mun æfa í 4 vikur og lýkur æfingunum 5. júlí. Verð fyrir þetta námskeið er 7.000 krónur

14 ára og eldri æfa þrisvar sinnum í viku og það á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum klukkan 18:00-19:00. Hópurinn mun æfa til 2. ágúst og er verðið fyrir námskeiðið 17.000 krónur.

Skráning fer fram á ka.felog.is


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is