Flýtilyklar
Mateo annar í kjöri íþróttamanns Akureyrar
16.01.2020
Júdó | Blak
Kjör íþróttamanns Akureyrar árið 2019 fór fram í menningarhúsinu Hofi í gærkvöldi. Valin var bæði íþróttakarl og íþróttakona ársins en að þessu sinni hlutu listhlaupakonan Aldís Kara Bergsdóttir og kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson sæmdarheitið.
KA átti að sjálfsögðu sína fulltrúa á hófinu en blakkappinn Miguel Mateo Castrillo sem nýverið var kjörinn íþróttamaður KA fyrir árið 2019 varð í 2. sæti hjá körlunum og þá var Alexander Heiðarsson úr júdódeild KA í 5. sæti.
Hjá konunum varð Hulda Elma Eysteinsdóttir frá blakdeild KA í 3. sæti. KA vill óska þeim Aldísi og Viktori til hamingju sem og öðrum verðlaunahöfum kvöldsins.