Flýtilyklar
Júdóæfingar fyrir 11-100 ára hefjast á mánudag
07.06.2020
Almennt | Júdó
Á morgun, mánudaginn 8. júní hefjast sumaræfingar í júdó. Æfingarnar verða með fremur óhefðbundnu sniði.
- Æfingar verða fyrir 11 ára (á árinu) og eldri.
- Æfingar verða þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 17:15-18:30.
- Þjálfari í sumar verður Adrien Fontenaud en hann er eldri iðkendum vel kunnugur.
- Engin æfingagjöld verða rukkuð í sumar en við gerum samt kröfu á að allir sem stefna á að æfa í sumar skrái sig í Nóra, helst áður en þeir byrja að mæta á æfingu.
- Æfingar í sumar verða ekki byrjendaæfingar. Þær verða eingöngu fyrir þá sem hafa æft áður og kunna eitthvað smá í júdó.