Flýtilyklar
Ingþór og Kristín sigruðu á Afmælismóti Júdósambandsins.
31.01.2011
Júdó
Nú um helgina fór fram Afmælismót Júdósambands Íslands.
KA fólk vann þar til eftirtaldra verðlauna:
-70kg konur:
KA átti 3 keppendur í þessum flokki, þær Kristínu Ástu Guðmundsdóttur, Fionu Ýr Sigurðardóttur og Helgu Hansdóttur. Helga veiktist og varð að hætta keppni. Kristín fór hins vegar á kostum á mótinu og sigraði. Fiona átti líka góðan dag og vann til bronsverðlauna. Þess má geta að allar fyrrnefndar stúlkur eru í -63kg flokki en
ákváðu að glíma einum flokki ofar til að fá meiri keppni sem segir nokkuð um metnað þeirra og getu.
-100kg karlar:
KA átti tvo keppendur, þá Ingþór Örn Valdimarsson og Karl Stefánsson og röðuðu þeir sér í tvö efstu sætin. Ingþór sigraði eins og við var búist og Karl varð í öðru sæti. Árangur Karls er magnaður vegna þess að hann er aðeins 15 ára og var þetta hans fyrsta mót í fullorðinsflokki.
-81 kg karla:
Gunnar Örn Arnórsson var fulltrúi KA í þessum flokki. Gunnar er nýliði en svo var ekki að sjá á þessu móti. Hann komst alla leið í undanúrslit en tapaði þar og endaði því í 3. sæti. Gunnar vakti mikla athygli á mótinu og var það mál manna að sjaldan hefði sést jafn öflugur nýliði á júdómóti.
Um helgina fór einnig fram lokaumferð í Bikarmóti 2010. Bikarmótið er liðakeppni þar sem keppt er í 5 manna liðum. JR sigraði, Ármann varð í öðru sæti og KA í því þriðja.