Flýtilyklar
Herrakvöld KA 24. mars
Herrakvöld KA verður haldið laugardagskvöldið 24. mars næstkomandi í KA-Heimilinu. Ræðumaður kvöldsins verður enginn annar en Guðjón Þórðarson en í ár eru 30 ár frá ráðningu hans sem þjálfari knattspyrnuliðs KA. Það má svo sannarlega búast við mögnuðum sögum frá Guðjóni enda er hann ekki þekktur fyrir að fara í kringum hlutina!
Það verður mikil og skemmtileg dagskrá eins og alltaf á Herrakvöldi KA, hið klassíska uppboð verður á sínum stað og óvæntar uppákomur. Á boðstólum verður glæsilegur grillmatur frá Greifanum sem mun ekki svíkja neinn.
Athugið að takmarkaður fjöldi miða er í boði þannig að ekki hika við að bóka miða á þessa einstöku KA skemmtun!
Miðaverð er 7.000 krónur og er hægt að panta miða hjá Siguróla í netfanginu siguroli@ka.is