Flýtilyklar
Mikilvægur sigur KA á HK (myndaveisla)
KA tók á móti HK í síðasta heimaleik ársins í Olísdeild karla í KA-Heimilinu á föstudaginn en leikurinn var sá fyrsti í síðari umferð deildarinnar. KA vann góðan sigur er liðin mættust í Kópavogi fyrr í vetur og voru strákarnir staðráðnir í að sækja önnur mikilvæg tvö stig gegn liði HK.
HK spilar ákaflega hraðan og skemmtilegan handbolta en liðið sótti sitt fyrsta stig í síðustu umferð er liðið gerði ótrúlegt 39-39 jafntefli gegn ÍBV. Það kom því ekki mikið á óvart að leikurinn fór ansi fjörlega af stað og keyrðu gestirnir upp hraðann. Eftir fimmtán mínútna leik var staðan 11-13 fyrir HK en framliggjandi vörn KA tókst takmarkað að klukka gestina.
En þegar leið á fyrri hálfleikinn tókst strákunum að finna betri lausnir og tókst jafnt og þétt að snúa leiknum sér ívil. Hálfgert flautumark undir lokin tryggði svo KA liðinu 19-18 forystu er liðin gengu inn til búningsherbergja sinna.
Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum
Síðari hálfleikur var sveiflukenndur þar sem liðin skiptust á að koma með áhlaup og var spennan í algleymingi. Liðunum gekk erfiðar að sækja mörk í þeim síðari en er KA fór að leika með aukamann í sókninni gengu hlutirnir betur og betur og að lokum vannst sanngjarn 33-30 sigur.
Gríðarlega mikilvæg tvö stig í hús og strákarnir nú búnir að vinna tvo leiki í röð, eru komnir með 10 stig og sækja um næstu helgi lið Víkings heim í lokaleiknum fyrir jólafrí og geta með sigri þar komið sér í ansi góða stöðu fyrir síðari helming vetrarins.
Ólafur Gústafsson og Einar Rafn Eiðsson voru markahæstir í liði KA með 7 mörk hvor, Óðinn Þór Ríkharðsson gerði 6, Einar Birgir Stefánsson 4, Patrekur Stefánsson 3, Pætur Mikkjalsson 2, Arnar Freyr Ársælsson 2, Arnór Ísak Haddsson 1 og Allan Norðberg 1 mark. Nicholas Satchwell átti mjög góðan leik í markinu og varði alls 20 skot, þar af tvö vítaköst og endaði hann með 41,7% markvörslu.