Flýtilyklar
Jens Bragi framlengir um tvö ár
Jens Bragi Bergþórsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2024-2025. Jens sem er enn aðeins 16 ára gamall lék 11 leiki með meistaraflokksliði KA á nýliðnu tímabili þar sem hann gerði 17 mörk, þar af 6 í heimaleik gegn Selfyssingum.
Það eru afar jákvæðar fréttir að Jens sé búinn að gera nýjan samning en hann er einn allra efnilegasti línumaður landsins og verið burðarstóll í ógnarsterku liði KA í árgang 2006 en strákarnir töpuðu ekki leik í öllum fjórða flokki þar sem þeir hömpuðu öllum þeim titlum sem í boði voru á Íslandi áður en þeir urðu Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna.
Frammistaða Jens á nýliðinni leiktíð sýnir skýrt að hann á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og verður afar gaman að fylgjast með honum áfram stíga skref fram á við í meistaraflokksliði KA í efstu deild á næstu leiktíð.