Hrafnhildur og Hildur til liðs við KA/Þór

Handbolti

Hrafnhildur Irma Jónsdóttir og Hildur Marín Andrésdóttir gengu á dögunum í raðir KA/Þórs og munu án nokkurs vafa styrkja liðið fyrir baráttuna í vetur. Þá framlengdu þær Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir og Katrín Vilhjálmsdóttir sína samninga við félagið.

Hildur Marín er 33 ára gömul og er uppalin hjá KA/Þór en hún fór snemma suður og er því loksins komin aftur heim í heimahagana hjá KA/Þór. Hrafnhildur Irma er 22 ára gömul og gengur í raðir KA/Þórs frá Fylki. Báðar léku þær í fyrsta leik vetrarins er KA/Þór sótti ÍBV heim til Vestmannaeyja.

Þær Kristín og Katrín leika báðar í vinstra horni og eru báðar uppaldar hjá KA/Þór og afar jákvætt að halda þeim áfram innan okkar raða. Kristín hefur bætt sig gríðarlega á undanförnum árum og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hennar í vetur. Katrín er auk þess að vera öflugur hornamaður frábær varnarmaður og mikill leiðtogi.

KA/Þór tekur á móti Haukum í fyrsta heimaleik vetrarins klukkan 16:00 í dag og verða þær Hrafnhildur, Hildur, Kristín og Katrín að sjálfsögðu í eldlínunni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is