Flýtilyklar
Heimir Örn kemur í þjálfarateymi KA
02.12.2021
Handbolti
Heimir Örn Árnason kemur inn í þjálfarateymi KA og verður þeim Jonna og Sverre til aðstoðar og halds og trausts. Handboltaunnendur ættu að þekkja Heimi en hann er fæddur og uppalinn KA maður og hefur mikla reynslu bæði sem leikmaður og þjálfari.
Heimir mun þar af leiðandi láta af dómgæslu í bili en Heimir hefur getið sér orðspor sem einn besti dómari landsins undanfarin ár.
KA leikur gegn Gróttu á sunnudaginn og mun Heimir vera í þjálfarateyminu í þeim leik, ásamt Jónatani og Sverre.