Flýtilyklar
Handknattleiksdeild KA í Macron
16.04.2022
Handbolti
Handknattleiksdeild KA skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Macron og verða því handknattleikslið KA og KA/Þórs í fatnaði á vegum Macron frá og með næsta tímabili.
Það eru spennandi tímar framundan í handboltanum hjá okkur, meistaraflokkar KA og KA/Þórs hafa stigið stór skref fram á við á undanförnum árum og við stefnum enn hærra á næstu árum. Á sama tíma hefur iðkendum í yngriflokkum fjölgað mikið og gengi innan vallar verið frábært.
Nýr samningur handknattleiksdeildar við Macron er afar þýðingarmikill fyrir deildina og mun án efa lyfta starfi deildarinnar upp á enn hærra plan.