Fyrsti heimaleikur vetrarins er á morgun!

Handbolti
Fyrsti heimaleikur vetrarins er á morgun!
Vertu með í allan vetur! (mynd: Egill Bjarni)

Það er loksins komið að fyrsta heimaleiknum í handboltanum þegar KA tekur á móti ÍBV í KA-Heimilinu á morgun, laugardag, klukkan 16:30. Við teflum fram ungu og spennandi liði í vetur sem er uppfullt af uppöldum KA strákum og verður afar gaman að fylgjast með framgöngu þeirra í vetur.

Við minnum á að ársmiðasalan er í fullum gangi í Stubb og í afgreiðslu KA-Heimilisins. Stakur ársmiði hjá karlaliði KA eða kvennaliði KA/Þórs kostar 20.000 krónur og gildir á alla heimaleiki þess liðs í Olísdeildinni.

Athugið að sérstakt tvennutilboð er í boði í afgreiðslu KA-Heimilisins en þar er hægt að fá ársmiða á leiki KA og KA/Þórs saman á aðeins 30.000 krónur. Miðarnir eru svo afhentir í Stubbsappið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is