Flýtilyklar
Einar, Jón og Raggi með 100 leiki fyrir KA
Þeir Einar Birgir Stefánsson, Jón Heiðar Sigurðsson og Ragnar Snær Njálsson léku á dögunum sinn 100 leik fyrir KA í handboltanum og munum við heiðra þá fyrir leik dagsins. KA tekur á móti Aftureldingu í Olísdeild karla kl. 16:00 í KA-Heimilinu og hvetjum við ykkur til að mæta snemma til að heiðra kappana.
Jón Heiðar lék sinn 100 leik þann 17. desember þegar KA vann 22-31 útisigur á Víkingum en hann hefur fyrir leik dagsins nú leikið alls 108 leiki fyrir KA. Jón sem er fyrirliði KA hefur í þessum leikjum alls gert 185 mörk en auk þessara leikja fyrir KA lék hann 83 leiki fyrir sameiginlegt lið Akureyrar Handboltafélags.
Einar Birgir lék sinn 100 leik fyrir KA þann 9. mars er strákarnir unnu frækinn 28-27 sigur á Selfyssingum eftir framlengingu í undanúrslitum Coca-Cola bikarsins. Hann hefur fyrir leik dagsins nú leikið 102 leiki fyrir KA og gert í þeim 144 mörk.
Ragnar Snær lék sinn 100 leik í vikunni er KA vann frábæran 24-26 endurkomusigur á Fram. Ragnar lék sinn fyrsta leik fyrir KA þann 14. september 2004 og lék hann alls 52 leiki á árunum 2004-2006. Hann sneri síðan aftur á heimaslóðir fyrir tímabilið í fyrra og hefur nú náð þessum merka áfanga.
Við óskum strákunum innilega til hamingju með áfangann og hlökkum til að sjá ykkur fyrir leik dagsins.