Áhorfendur leyfðir á stórleik KA/Þórs og Vals

Handbolti
Áhorfendur leyfðir á stórleik KA/Þórs og Vals
Stelpurnar þurfa á þínum stuðning að halda!

KA/Þór tekur á móti Val í stórleik í Olísdeild kvenna klukkan 16:30 á morgun, laugardag, og við getum loksins aftur tekið við áhorfendum í stúkuna. Alls getum við tekið við 500 áhorfendum og ljóst að við þurfum á ykkar stuðning að halda!

Liðin börðust um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð þar sem stelpurnar okkar tryggðu sér eftirminnilega titilinn í fyrsta skiptið. Stelpunum tókst einnig að leggja lið Vals að Hlíðarenda fyrr í vetur en það var fyrsta tap Vals í vetur. Það má svo sannarlega búast við svakalegum leik og hlökkum við til að finna fyrir stuðningi ykkar í stúkunni, áfram KA/Þór!

Athugið að ekki er lengur þörf á að fara í hraðpróf fyrir leiki en við minnum á að grímuskylda er áfram í gildi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is