Flýtilyklar
Æfingatafla handknattleiksdeildar 2024-2025
Handboltinn er að fara á fullt og hefjast æfingar samkvæmt æfingatöflu mánudaginn 26. ágúst næstkomandi. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem hafa áhuga á að kíkja á æfingu og prófa þessa stórskemmtilegu þjóðaríþrótt íslendinga.
Handboltinn kynnir í fyrsta sinn árgjöld, þ.e.a.s. að tímabilið er heilt ár. Frá ágúst 2024 til júlí 2025 með fyrirframuppgefnum sumarfríum, jólafríum og öðru slíku. Þetta þýðir að ekki þurfi sérstaklega að skrá á sumar eða haustæfingar og fólk getur séð á dagatali deildarinnar sem gefið verður út á næstu dögum hvenær er frí frá hefðbundnum handboltaæfingum. Æfingataflan sem tekur gildi núna 26.ágúst gildir út maí, og svo verða aðrir æfingatímar næsta sumar.
Eins og við kynntum í gær er nýr yfirþjálfari handknattleiksdeildar KA hann Svavar Ingi Sigmundsson, iðulega kallaður Svabbi. Síminn hjá honum er 864-8899 og tölvupóstfangið svavar@ka.is.
Ekki hika við að hafa samband ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir. Annars fara öll samskipti í gegnum Sportabler. Styrktarþjálfari er Egill Ármann Kristinsson.
Smelltu á töfluna til að sjá hana stærri
Æfingagjöld o.fl.
- Skráning iðkenda, greiðsla æfingagjalda og öll upplýsingamiðlun fer nú fram í gegnum Sportabler.
- Kerfið er afar einfalt í notkun og ef einhver lendir í vandræðum með kerfið bendum við á þjónustuver hjá Sportabler.
- Með því að færa æfingagjöldin yfir einföldum við starfið með því að hafa allt á sama stað, gjöld, skráningar og upplýsingamiðlun.
- Aðstandendur hafa góða yfirsýn yfir stöðu skráninga í Sportabler appinu.
-
Systkinaafsláttur er 10% og millideildaafsláttur hjá KA er 10%. Kerfið sér um að reikna afsláttinn eins og við á.
Smellið á https://sportabler.com/shop/KA til að fara á skráningarsíðu KA.
Almennt um æfingagjöld hjá yngri flokkum KA og KA/Þórs í handbolta.
Skilyrði er að skráning sé framkvæmd í upphafi tímabils.
Almennt eru leyfðir prufutímar í samkomulagi við þjálfara.
Mikilvægt er að hafa samband við Unglingaráð ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkandans.
Ef iðkandi hættir á miðju tímabili eru gjöldin ekki endurgreidd. Hægt er að sækja um undanþágu frá þessu til Unglingaráðs. Ekki er heimilt að endurgreiða Tómstundaávísun Akureyrarbæjar.