Tvö stórmót í lyftingum í KA um helgina

Lyftingar

Lyftingadeild KA stendur í stórræðum um helgina en deildin heldur tvö stórmót í KA-Heimilinu. Á laugardeginum fer fram Íslandsmeistaramót í réttstöðulyftu og á sunnudaginn fer fram sumarmót LSÍ og KA í ólympískum lyftingum.

Hasarinn verður í beinni á KA-TV en við hvetjum að sjálfsögðu alla sem áhuga hafa að kíkja upp í KA-Heimili og upplifa stemninguna á þessum mögnuðu mótum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is