Stór vika hjá Lyftingadeild KA

Lyftingar

Það var stór vika hjá Lyftingadeild KA í síðustu viku. Alex Cambrey Orrason gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet þegar hann keppti á Evrópumótinu í kraftlyftingum með búnaði. Mótið fór fram í Hamm í Lúxemburg, 7.–12. maí. Árangur Alex skilaði honum fimmta sæti í -93kg. flokki.

Hnébeygja: 340 kg.
Bekkpressa: 207.5 kg.
Réttstaða: 292,5 kg.
Samanlagt: 840 kg.

Alex bætti þarna sitt eigið Íslandsmet og óhætt að segja að hann hafi átt góða viku. Við óskum okkar manni innilega til hamingju með árangurinn.

Lyftingadeild KA átti einnig nokkra keppendur á Íslandsmeistaramóti ungmenna og öldunga síðastliðna helgi. Hjá ungmennunum varð Aníta Kajudóttir Íslandsmeistari í -63kg flokki og Kamil Potrykus setti Íslandsmet í hnébeygju (sub-junior -105kg) þegar hann lyfti 196,5kg. Hjá „öldungum“ varð Heiðrún Frímannsdóttir (1975) Íslandsmeistari í 84kg flokki.

Aníta Rún Bech Kajudóttir (2005): Íslandsmeistari (63 kg. flokkur)
Friðrik Alvin Grankvist (2005): Annað sæti (Junior, 93 kg. flokkur)
Kamil Krzyzstof Potrykus (2006): Annað sæti, Íslandsmet í hnébeygju (105 kg. flokkur)

Heiðrún Frímannsdóttir (1975): Íslandsmeistari (84 kg. flokkur)
Erling Tom Erlingsson (1978): Þriðja sæti (120 kg. flokkur)
Reginn Fannar Unason (1984): Annað sæti (+120 kg. flokkur)

Sjá má öll úrslit frá mótinu hér.

Við óskum okkar fólki og deildinni til hamingju með árangurinn!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is