Knattspyrnufélag Akureyrar fagnar 96 ára afmæli sínu mánudaginn 8. janúar næstkomandi og í tilefni áfangans verðum við með opið vöfflukaffi í KA-Heimilinu á sjálfan afmælisdaginn frá klukkan 16:00 til 18:00. Bjóðum félagsmenn og aðra velunnara félagsins hjartanlega velkomna.