Flýtilyklar
Opinn fyrirlestur um næringu og árangur
23.05.2019
Almennt
Í dag klukkan 17:30 verður opinn fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri sem fjallar um næringu og árangur í íþróttum. Fyrirlesari er Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur en hann mun fara yfir hina ýmsu punkta eins og algengar mýtur, vökvaþörf, tímasetningar máltíða og fleira.
Við hvetjum metnaðarfulla iðkendur í KA, 13 ára og eldri til þess að mæta og fræðast um mikilvægan þátt í leiðinni á toppinn.